Fyrri mynd
Nsta mynd
Sameining Austur-Hnavatnssslu
Sameining A-Hnavatnssslu
Open Menu Close Menu
 
Til baka
Sameining Austur-Hnavatnssslu

Fréttir

Fundargerðir

Minnisblöð

Ýmis gögn

Sameiningarnefndin

Framkvæmdaráðið

 

Upplýsingavefur um sameiningu sveitarfélaga í A-Hún.

Velkomin(n) á upplýsingavef um sameiningarmál sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Hér má finna fréttir, tilkynningar, fundargerðir og aðrar upplýsingar sem tengjast fyrirhugaðri sameiningu sveitarfélaganna fjögurra í Austur-Húnavatnssýslu sem eru; Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd.

Opnir fundir um málefni A-Hún.

Ráðrík ehf. boðar til opinna funda í Austur-Húnavatnssýslu þessa vikuna til að fara yfir stöðu sveitarfélaganna í sýslunni og þá málaflokka sem virðast mikilvægastir hjá íbúum. Ráðgjafar fyrirtækisins hafa fundað með ýmsum félagasamtökum undanfarnar vikur og heimsótt fyrirtæki á svæðinu til að kalla fram viðhorf íbúa til sameiningar sveitarfélaganna. Til að tryggja það að allir sem vilja koma að umræðunni hafi til þess möguleika er efnt til þessara opnu funda.

Íbúar geta valið hvaða fund þeir kjósa að sækja. Reynt verður að tryggja að sem flestir geti komið sínum viðhorfum að á fundunum og að gott samtal um framtíðina og möguleika svæðisins eigi sér stað.

Fundirnir verða sem hér segir.

Miðvikudaginn            4. apríl             Skagabúð kl. 16:00
Miðvikudaginn            4. apríl             Félagsheimilinu Blönduósi kl. 20:00
Fimmtudaginn            5. apríl             Klausturstofa Þingeyrarkirkju kl. 16:00
Fimmtudaginn            5. apríl             Fellsborg Skagaströnd kl. 20:00
Föstudaginn               6. apríl             Húnavöllum kl. 16:00
Föstudaginn               6. apríl             Húnaveri kl. 20:00

Rafrænn íbúafundur í kvöld

Í kvöld klukkan 20-23 verður fyrri rafræni íbúafundurinn um sameiningarviðræður í Austur-Húnavatnssýslu. Sá seinni verður á laugardaginn klukkan 10-13. Markmið fundanna er að kynna hugmyndir um uppbyggingu sameiginlegs sveitarfélags og fyrirkomulag þjónustu og verkefna, og fá fram sjónarmið og ábendingar íbúa áður en endanleg sameiningartillaga verður útfærð. Kynningarefni er aðgengilegt á Húnvetningi, sem er vefur sameiningarviðræðanna.
:: meira

Samstarfsnefnd um sameiningu fullskipuð

Sveitarstjórnir Húnavatnshrepps og Skagabyggðar hafa samþykkt tillögu sameiningarnefndar Austur-Húnavatnssýslu um að um að sveitarfélögin fjögur í sýslunni hefji formlegar sameiningarviðræður og skipi tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd. Húnavatnshreppur hefur skipað Jón Gíslason og Ragnhildi Haraldsdóttur í samstarfsnefndina og Jóhönnu Magnúsdóttur og Þóru Margréti Lúthersdóttur til vara. Skagabyggð hefur skipað Karenu Steinsdóttur og Magnús Björnsson í samstarfsnefndina.
:: meira

Skipa fulltrúa í samstarfsnefnd

Sveitarstjórnir Blönduósbæjar og Skagastrandar hafa samþykkt tillögu sameiningarnefndar Austur-Húnavatnssýslu um að sveitarfélögin fjögur í sýslunni hefji formlegar sameiningarviðræður og skipi tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd. Skagaströnd hefur skipað Halldór G. “lafsson og Kristínu B. Leifsdóttir í samstarfsnefndina og Péturínu L. Jakobsdóttur og Guðmund Egil Erlendsson til vara. Blönduósbær hefur skipað Guðmund Hauk Jakobsson og Birnu Ágústsdóttur og til vara Sigurgeir Þór Jónasson og Gunnar Tryggva Halldórsson.
:: meira

Lagt til að formlegar sameiningarviðræður sveitarfélaga í A-Hún. hefjist

Sameiningarnefnd sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu hefur samþykkt að leggja til við sveitarstjórnir Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar að hafnar verði formlegar sameiningarviðræður. Lagt er til að sveitarfélögin samþykki að skipa tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd sem kanna skal möguleika á sameiningu sveitarfélaganna í samræmi við 119. grein sveitarstjórnarlaga.
:: meira
 
Prenta Prenta