Upplýsingavefur um sameiningu sveitarfélaga í A-Hún.
Velkomin(n) á upplýsingavef um sameiningarmál sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Hér má finna fréttir, tilkynningar, fundargerðir og aðrar upplýsingar sem tengjast fyrirhugaðri sameiningu sveitarfélaganna fjögurra í Austur-Húnavatnssýslu sem eru; Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd.
06. maí 2018
Samantekt af íbúafundum og tillögur um næstu skref
Frá áramótum hefur Ráðrík ehf., unnið að verkefninu Framtíðarskipan sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Haldnir hafa verið fundir með sameiningarnefnd og framkvæmdarráði hennar, félagasamtökum, vinnustaðir heimsóttir, unnið úr gögnum frá sveitarfélögunum sem og öðrum opinberum aðilum. Áfangaskýrslu var skilað til sameiningarnefndar 1. mars sl. Upplýsingar og samantektir verið settar á heimasíðu verkefnisins https://sameining.huni.is/, og gefið út kynningarefni sem dreift var í hvert hús í sýslunni.
Í byrjun apríl voru haldnir sex opnir íbúafundir sem voru afar vel sóttir og má segja að um 400 manns samtals hafi komið að verkefninu á hinu ýmsu stigum. Að loknum íbúafundum kom fram beiðni frá formanni sameininganefndarinnar þess efnis að halda fund með ráðgjöfum Ráðrík og fara yfir umræður á íbúafundum og ræða næstu skref. Sá fundur fór fram 27. apríl síðastliðinn og lagði Ráðrík fram samantekt af því sem fram koma á íbúafundunum og tillögur að næstu skrefum.
Samantektina og tillögurnar má sjá hér.
03. mars 2021
Í kvöld klukkan 20-23 verður fyrri rafræni íbúafundurinn um sameiningarviðræður í Austur-Húnavatnssýslu. Sá seinni verður á laugardaginn klukkan 10-13. Markmið fundanna er að kynna hugmyndir um uppbyggingu sameiginlegs sveitarfélags og fyrirkomulag þjónustu og verkefna, og fá fram sjónarmið og ábendingar íbúa áður en endanleg sameiningartillaga verður útfærð. Kynningarefni er aðgengilegt á Húnvetningi, sem er vefur sameiningarviðræðanna.
28. október 2020
Sveitarstjórnir Húnavatnshrepps og Skagabyggðar hafa samþykkt tillögu sameiningarnefndar Austur-Húnavatnssýslu um að um að sveitarfélögin fjögur í sýslunni hefji formlegar sameiningarviðræður og skipi tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd. Húnavatnshreppur hefur skipað Jón Gíslason og Ragnhildi Haraldsdóttur í samstarfsnefndina og Jóhönnu Magnúsdóttur og Þóru Margréti Lúthersdóttur til vara. Skagabyggð hefur skipað Karenu Steinsdóttur og Magnús Björnsson í samstarfsnefndina.
14. október 2020
Sveitarstjórnir Blönduósbæjar og Skagastrandar hafa samþykkt tillögu sameiningarnefndar Austur-Húnavatnssýslu um að sveitarfélögin fjögur í sýslunni hefji formlegar sameiningarviðræður og skipi tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd. Skagaströnd hefur skipað Halldór G. lafsson og Kristínu B. Leifsdóttir í samstarfsnefndina og Péturínu L. Jakobsdóttur og Guðmund Egil Erlendsson til vara. Blönduósbær hefur skipað Guðmund Hauk Jakobsson og Birnu Ágústsdóttur og til vara Sigurgeir Þór Jónasson og Gunnar Tryggva Halldórsson.
04. október 2020
Sameiningarnefnd sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu hefur samþykkt að leggja til við sveitarstjórnir Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar að hafnar verði formlegar sameiningarviðræður. Lagt er til að sveitarfélögin samþykki að skipa tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd sem kanna skal möguleika á sameiningu sveitarfélaganna í samræmi við 119. grein sveitarstjórnarlaga.