Fyrri mynd
Nsta mynd
Sameining Austur-Hnavatnssslu
Sameining A-Hnavatnssslu
Open Menu Close Menu
 
Til baka
Sameining Austur-Hnavatnssslu

Fréttir

Fundargerðir

Minnisblöð

Ýmis gögn

Sameiningarnefndin

Framkvæmdaráðið

 

Upplýsingavefur um sameiningu sveitarfélaga í A-Hún.

Velkomin(n) á upplýsingavef um sameiningarmál sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Hér má finna fréttir, tilkynningar, fundargerðir og aðrar upplýsingar sem tengjast fyrirhugaðri sameiningu sveitarfélaganna fjögurra í Austur-Húnavatnssýslu sem eru; Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd.

Frá Skagaströnd.
Frá Skagaströnd.
Fjárhagsáætlun Skagastrandar samþykkt

Á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar í gær fór fram seinni umræða um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2019-2022. Í rekstraryfirliti áætlunar 2019 kemur fram að heildartekjur samstæðu eru áætlaðar 638 milljónir króna þar af eru skatttekjur 490 milljónir og rekstrartekjur 148 milljónir. Rekstrargjöld eru áætluð 633 milljónir króna, þar af kostnaður vegna launa áætlaður 293 milljónir. Fjármagnsliðir eru áætlaðir jákvæðir um 5 milljónir og rekstrarniðurstaða samstæðu er áætluð jákvæð um 9,5 milljónir króna.

Í sjóðstreymi áætlunar er gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri samstæðu verði jákvætt um 54 milljónir króna. Samanlagðar fjárfestingahreyfingar eru áætlaðar 83 milljónir. Stærstu fjárfestingaþættirnir í áætlun eru 26 milljónir vegna fasteigna og gatna og 21 milljón vegna hafnarframkvæmda. Að teknu tilliti til fjárfestinga og fjármögnunarhreyfinga er áætlað að handbært fé lækki um 39 milljónir og handbært fé verði í árslok 415 milljónir. Í áætlun áranna 2019-2022 er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðu öll árin.

Rafrænn íbúafundur í kvöld

Í kvöld klukkan 20-23 verður fyrri rafræni íbúafundurinn um sameiningarviðræður í Austur-Húnavatnssýslu. Sá seinni verður á laugardaginn klukkan 10-13. Markmið fundanna er að kynna hugmyndir um uppbyggingu sameiginlegs sveitarfélags og fyrirkomulag þjónustu og verkefna, og fá fram sjónarmið og ábendingar íbúa áður en endanleg sameiningartillaga verður útfærð. Kynningarefni er aðgengilegt á Húnvetningi, sem er vefur sameiningarviðræðanna.
:: meira

Samstarfsnefnd um sameiningu fullskipuð

Sveitarstjórnir Húnavatnshrepps og Skagabyggðar hafa samþykkt tillögu sameiningarnefndar Austur-Húnavatnssýslu um að um að sveitarfélögin fjögur í sýslunni hefji formlegar sameiningarviðræður og skipi tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd. Húnavatnshreppur hefur skipað Jón Gíslason og Ragnhildi Haraldsdóttur í samstarfsnefndina og Jóhönnu Magnúsdóttur og Þóru Margréti Lúthersdóttur til vara. Skagabyggð hefur skipað Karenu Steinsdóttur og Magnús Björnsson í samstarfsnefndina.
:: meira

Skipa fulltrúa í samstarfsnefnd

Sveitarstjórnir Blönduósbæjar og Skagastrandar hafa samþykkt tillögu sameiningarnefndar Austur-Húnavatnssýslu um að sveitarfélögin fjögur í sýslunni hefji formlegar sameiningarviðræður og skipi tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd. Skagaströnd hefur skipað Halldór G. “lafsson og Kristínu B. Leifsdóttir í samstarfsnefndina og Péturínu L. Jakobsdóttur og Guðmund Egil Erlendsson til vara. Blönduósbær hefur skipað Guðmund Hauk Jakobsson og Birnu Ágústsdóttur og til vara Sigurgeir Þór Jónasson og Gunnar Tryggva Halldórsson.
:: meira

Lagt til að formlegar sameiningarviðræður sveitarfélaga í A-Hún. hefjist

Sameiningarnefnd sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu hefur samþykkt að leggja til við sveitarstjórnir Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar að hafnar verði formlegar sameiningarviðræður. Lagt er til að sveitarfélögin samþykki að skipa tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd sem kanna skal möguleika á sameiningu sveitarfélaganna í samræmi við 119. grein sveitarstjórnarlaga.
:: meira
 
Prenta Prenta