Fyrri mynd
Nsta mynd
Sameining Austur-Hnavatnssslu
Sameining A-Hnavatnssslu
Open Menu Close Menu
 
Til baka

Fréttir

 

Fréttir

Vatnsdalur. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson
Vatnsdalur. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson
Ný minnisblöð um ýmis málefni

Ný minnisblöð hafa verið að bætast við á vefinn, m.a. um atvinnumál, íþrótta- og æskulýðsmál og um sorp, fráveitu og rotþrær. Minnisblöðin eru nú orðin þrettán talsins.  Í minnisblaðinu um atvinnumál segir að þau brenni á íbúum sveitarfélaganna fjögurra. Í samtölum við íbúa hafi komið fram að atvinnuuppbygging væri það sem stæði framþróun svæðisins fyrir þrifum og mikill samhljómur væri um þá skoðun að sameinað sveitarfélag næði meiri slagkrafti.

Í minnisblaðinu er bent á skýrslur sem unnar hafa verið sem gefi góða mynd af stöðu atvinnumála í sveitarfélögunum.

Minnisblöðin má sjá hér.

Skýrslu um atvinnumál má sjá hér.

Prenta Prenta