Fyrri mynd
Nsta mynd
Sameining Austur-Hnavatnssslu
Sameining A-Hnavatnssslu
Open Menu Close Menu
 
Til baka

Fréttir

 

Fréttir

Húnaflói. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson.
Húnaflói. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson.
Kosið um sameiningu í fyrsta lagi á næsta ári

Sameiningarnefnd sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu er sammála um að kosið verði um sameiningu sveitarfélaganna á síðari hluta kjörtímabilsins, þ.e. árið 2020 eða í síðasta lagi árið 2021. Verði sameining samþykkt taki ný sveitarstjórn við árið 2022 eftir almennar sveitarstjórnarkosningar. Tíminn fram að því verði notaður til að vinna SVÓT greiningu fyrir alla málaflokka sem fram koma í drögum að málefnasamningi og þá þurfi framtíðarsýn fyrir Austur-Húnavatnssýslu að liggja fyrir.

Þetta kemur fram í fundargerð sameiningarnefndar frá 4. febrúar síðastliðnum þar sem staða verkefnisins var rædd og næstu skref. Í henni segir að ljóst sé að ekki verði kosið um sameiningu í vor eins og stefnt hafi verið að í upphafi. Til þess að hægt sé að kjósi þurfi að vinna betur að málinu í heild.

Á fundinum urðu umræður um hver aðkoma hins opinbera verði og hversu lengi skuli bíða eftir svörum þaðan. Þegar þau fáist verði hægt að fullvinna málefnaskrá, kynna hana fyrir sveitarstjórnum og fyrir íbúum og kjósa í framhaldinu. Fá þurfi fram með skýrari hætti aðkomu ríkisvaldsins að verkefnum á svæðinu og stefnumörkun til framtíðar í málefnum héraðsins.

Enn liggur ekki fyrir hver aðkoma Jöfnunarsjóðs verði að sameiningunni en það ætti að liggja fyrir á næstu vikum, segir í fundargerðinni.

Fundargerð sameiningarnefndarinnar frá 4. febrúar má nálgast á vefnum Sameining Austur-Húnavatnssýslu eða með því að smella hér.

Prenta Prenta