Fyrri mynd
Nsta mynd
Sameining Austur-Hnavatnssslu
Sameining A-Hnavatnssslu
Open Menu Close Menu
 
Til baka

Fréttir

 

Fréttir

Frá Blönduósi. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson.
Frá Blönduósi. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson.
Frumvarp um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga komið í samráðsgáttina

Drög að frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum sem innleiðir á ný ákvæði um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Samkvæmt frumvarpinu verður lágmarksíbúafjöldi 250 frá almennum sveitarstjórnarkosningum árið 2022 og 1.000 frá almennum sveitarstjórnarkosningum árið 2026. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með fimmtudagsins 27. febrúar 2020.

Á vef Stjórnarráðsins segir að frumvarpið sé það fyrsta sem lagt er fram af hálfu ráðherra sveitarstjórnarmála til að ná fram markmiðum nýsamþykktrar þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033 og aðgerðaráætlun fyrir árin 2019-2023.

Þar segir einnig að efni frumvarpsins sé í megindráttum tvískipt. Annars vegar þau ákvæði sem hafa þann tilgang að mæla fyrir um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga, aðlögun að slíku ákvæði og hvernig málsmeðferð skuli háttað þegar ráðherra hefur frumkvæði að sameiningu sveitarfélaga. Hins vegar önnur ákvæði frumvarpsins sem tengjast sameiningum sveitarfélaga, svo sem ákvæði sem skýrir heimildir sveitarfélaga til að nýta fjarfundarbúnað á fundum sínum. Þá er lagt til að sveitarfélög þurfi að móta stefnu um þjónustustig byggða sem eru fjarri stærri byggðakjörnum. Að auki eru lagðar til ýmsar aðrar breytingar sem hafa þann tilgang að draga úr lagahindrunum þegar kemur að sameiningu sveitarfélaga, sem og að tryggja fjárhagslegan stuðning úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga við sameiningar.

Hér er hægt að skoða drögin í samráðsgáttinni.

Hér er þingsályktun um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033 og aðgerðaráætlun fyrir árin 2019-2023.

Prenta Prenta