Fyrri mynd
Nsta mynd
Sameining Austur-Hnavatnssslu
Sameining A-Hnavatnssslu
Open Menu Close Menu
 
Til baka

Fréttir

 

Fréttir

Opnir fundir um málefni svæðisins
Tilkynning

Ráðrík ehf. hefur fundað með ýmsum félagasamtökum og heimsótt fyrirtæki á svæðinu til að kalla fram viðhorf íbúa. Til að tryggja það að allir sem vilja koma að umræðunni hafi til þess möguleika verður einnig efnt til opinna funda strax eftir páska sem þið eruð hvött til að nýta ykkur. Þið getir valið hvaða fund þið kjósið að sækja.

Á fundunum verður farið yfir stöðu sveitarfélaganna og þá málaflokka sem virðast mikilvægastir hjá íbúum. Skoðið endilega þau minnisblöð sem komin eru á vefinn um hina ýmsu málaflokka.

Reynt verður að tryggja að sem flestir geti komið sínum viðhorfum að á fundumun og að gott samtal um framtíðina og möguleika svæðisins eigi sér stað. Fundirnir verða sem hér segir:

Miðvikudaginn            4. apríl             Skagabúð kl. 16:00
Miðvikudaginn            4. apríl             Félagsheimilinu Blönduósi kl. 20:00
Fimmtudaginn            5. apríl             Klausturstofa Þingeyrarkirkju kl. 16:00
Fimmtudaginn            5. apríl             Fellsborg Skagaströnd kl. 20:00
Föstudaginn               6. apríl             Húnavöllum kl. 16:00
Föstudaginn               6. apríl             Húnaveri kl. 20:00

Við hvetjum ykkur til að mæta og ræða málin.

F.h. Ráðrík ehf.
Eyrún, Guðný og Svanfríður

 

Prenta Prenta