Ráðgjafar sameiningarnefndarinnar
Sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu sömdu í upphafi við ráðgjafarfyrirtækið Ráðrík ehf. um vinnu við framtíðarskipan sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu.
Ráðgjafar frá Ráðrík gerðu úttekt á og leiddu umræðu um framtíðarskipan sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Áhersla var lögð á samtöl við íbúa og var efnt til funda með fólki og félagasamtökum til að kveikja umræðu meðal þeirra um hin ýmsu málefni svæðisins, styrkleika þess og veikleika, áskoranir og tækifæri.
Í ársbyrjun 2020 ákvað sameiningarnefndin að hefja viðræður við RR ráðgjöf um ráðgjöf við verkefnið. RR ráðgjöf er ráðgjafafyrirtæki með sérþekkingu á stjórnsýslu, rekstri og málefnum sveitarfélaga. RR ráðgjöf sinnir verkefnum sem varða stjórnsýslu, stjórnun, rekstur og stefnumótun. Ráðgjafar eru Róbert Ragnarsson og Jón Hrói Finnsson.