Upplýsingavefur um sameiningu sveitarfélaga í A-Hún.
Velkomin(n) á upplýsingavef um sameiningarmál sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Hér má finna fréttir, tilkynningar, fundargerðir og aðrar upplýsingar sem tengjast fyrirhugaðri sameiningu sveitarfélaganna fjögurra í Austur-Húnavatnssýslu sem eru; Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd.
24. apríl 2020
Ákvörðun um formlegar sameiningarviðræður í september
Tilkynning frá sameiningarnefndinni
Á fundi sameiningarnefndar sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu þann 16. apríl var ákveðið að gera breytingar á tímalínu verkefnisins Húnvetnings vegna heimsfaraldurs Covid-19.
Í upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir að sveitarstjórnir tækju ákvörðun um hvort hefja skuli formlegar sameiningarviðræður í lok apríl eða maí. Eftirfarandi breyting á tímalínu hefur verið samþykkt:
- Ráðgjafar kynna niðurstöður greininga og tillögur á fundi sameiningarnefndar í lok maí eða byrjun júní. Tímasetning fundar mun ráðast af þróun samkomubanns.
- Sameiningarnefnd mótar áherslumál og verkefni í sumar og eigi samráð við þingmenn og ríkisstjórn.
- Sameiningarnefnd fjallar um tillögu um hvort hefja skuli formlegar sameiningar-viðræður um miðjan ágúst.
- Í september afgreiða sveitarstjórnir tillögu um hvort hefja skuli formlegar sameiningar-viðræður.
Eitt meginmarkmið verkefnisins er að vinna helstu hagsmunamálum Húnvetninga fylgis. Halldór G. Ólafsson bókaði á fundinum að hann telji að forsenda fyrir því að þessi tímalína geti staðist sé að hægt verði að ná ásættanlegu samtali við þingmenn og ríkisstjórn innan þess tíma sem um ræðir.
03. mars 2021
Í kvöld klukkan 20-23 verður fyrri rafræni íbúafundurinn um sameiningarviðræður í Austur-Húnavatnssýslu. Sá seinni verður á laugardaginn klukkan 10-13. Markmið fundanna er að kynna hugmyndir um uppbyggingu sameiginlegs sveitarfélags og fyrirkomulag þjónustu og verkefna, og fá fram sjónarmið og ábendingar íbúa áður en endanleg sameiningartillaga verður útfærð. Kynningarefni er aðgengilegt á Húnvetningi, sem er vefur sameiningarviðræðanna.
28. október 2020
Sveitarstjórnir Húnavatnshrepps og Skagabyggðar hafa samþykkt tillögu sameiningarnefndar Austur-Húnavatnssýslu um að um að sveitarfélögin fjögur í sýslunni hefji formlegar sameiningarviðræður og skipi tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd. Húnavatnshreppur hefur skipað Jón Gíslason og Ragnhildi Haraldsdóttur í samstarfsnefndina og Jóhönnu Magnúsdóttur og Þóru Margréti Lúthersdóttur til vara. Skagabyggð hefur skipað Karenu Steinsdóttur og Magnús Björnsson í samstarfsnefndina.
14. október 2020
Sveitarstjórnir Blönduósbæjar og Skagastrandar hafa samþykkt tillögu sameiningarnefndar Austur-Húnavatnssýslu um að sveitarfélögin fjögur í sýslunni hefji formlegar sameiningarviðræður og skipi tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd. Skagaströnd hefur skipað Halldór G. lafsson og Kristínu B. Leifsdóttir í samstarfsnefndina og Péturínu L. Jakobsdóttur og Guðmund Egil Erlendsson til vara. Blönduósbær hefur skipað Guðmund Hauk Jakobsson og Birnu Ágústsdóttur og til vara Sigurgeir Þór Jónasson og Gunnar Tryggva Halldórsson.
04. október 2020
Sameiningarnefnd sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu hefur samþykkt að leggja til við sveitarstjórnir Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar að hafnar verði formlegar sameiningarviðræður. Lagt er til að sveitarfélögin samþykki að skipa tvo fulltrúa hvert sveitarfélag og tvo til vara í samstarfsnefnd sem kanna skal möguleika á sameiningu sveitarfélaganna í samræmi við 119. grein sveitarstjórnarlaga.